|
|
INTERCOMM er samstarfsverkefni fjögurra Evrópuþjóða
og er það styrkt af Leonardo da Vinci II starfsmenntunaráætlun ESB. Tilgangur
verkefnisins er að auka þekkingu fyrirtækja á viðskiptamenningu og
stjórnunarháttum í löndum Evrópu og auka þar með samkeppnishæfni þeirra. Megin
áhersla verður lögð á að koma á framfæri mikilvægi menningarlæsis og
tungumálakunnáttu í alþjóðaviðskiptum og auðvelda aðgang fyrirtækja í
samstarfslöndunum að upplýsingum af þessu tagi. Samstarfslöndin eru Írland, Ísland,
Portúgal og Bretland.
|
 |
|
INTERCOMM er tveggja ára verkefni. Það hófst í
desember 2002 og því lýkur í desember 2004.
|
|